Íslenska Gámafélagið/Vélamiðstöðin opna formlega fyrsta metanverkstæðið hér á landi
Umhverfisvæn og atvinnuskapandi aðgerð
Í dag 12. maí 2010 verður fyrsta formlega metanverkstæði landsins opnað hér á landi.
Íslenska Gámafélagið, sem á dögunum var valið Fyrirtæki ársins í könnun VR, stendur fyrir opnuninni.
Metanverkstæðið hefur það að markmiði að uppfæra bensínbíla og díselbíla með metanbúnaði og nýta þannig íslenska orku sem er mun ódýrari og stuðlar að hreinna umhverfi.
30 ný störf munu skapast á þessu ári á verkstæðinu en Vélamiðstöðin sem er í eigu Íslenska Gámafélagsins sér um rekstur metanverkstæðisins.
Vélamiðstöðin hefur yfir 45 ára reynslu í bílsmíði og þróun á sérlausnum fyrir einstaklinga og fyrirtæki.
Þróunin á metanuppfærslu á bílum hefur skilað hreinna umhverfi og betra samfélagi og er markmiðið að gera enn betur.
Íslenska Gámafélagið var handhafi Kuðungsins, umhverfisverðlauna Umhverfisráðuneytisins fyrir árið 2008 og fékk fyrirtækið þau verðlaun m.a. fyrir frumkvöðlastarf á sviði metanbreytinga.
Vélamiðstöðin mun áfram stuðla að grænu frumkvöðlastarfi íslensku samfélagi og umhverfi til hagsbóta.
Til hamingju með daginn Íslendingar

