
Vélamiðstöðin er þjónustufyrirtæki sem býður uppá vélaleigu og metanbreytingar.
Fyrirtækið vinnur að því að þróa og bjóða uppá lausnir sem minnka umhverfisáhrif og stuðla að sjálfbærri þróun
einkum á sviði grænnar orku. Vélamiðstöðin er þekkt fyrir gæði þjónustunnar og framfarir í umhverfismálum. Við leitum stöðugt nýrra tækifæra og eigum frumkvæðið að bættri sjálfbærri framtíð. Þetta gerum við með því að byggja upp virkt umhverfisstjórnunarkerfi í samræmi við kröfur ISO 14001 og leggjum sérstaklega áherslu á að auka notkun vistvænnar orku í starfsemi okkar.
Framtíðarsýn okkar er að vera leiðandi fyrirtæki á Íslandi í umhverfisstjórnun,
Til að tryggja stöðugar framfarir í umhverfismálum setjum við mælanleg markmið og vinnum markvisst með umhverfisþætti fyrirtækisins. Allir starfsmenn skulu vera meðvitaðir um umhverfisáhrif fyrirtækisins og hafa kunnáttu og færni til að draga skipulega úr áhrifum þýðingamestu umhverfisþáttanna, sem eru:• Eldsneytisnotkun og losun gróðurhúsalofttegunda.
• Efnanotkun, spilliefnaúrgangur og losun efna í vatn og jarðveg.
• Almennur úrgangur – meðhöndlun og flokkun.
• Innri loftgæði á starfsstöðvum.
• Efling umhverfisvitundar; þjónusta fyrirtækisins, fræðsla og ytri samskipti.
Umhverfisstefnuna kynnum við öllu starfsfólki okkar, viðskiptavinum og birgjum, við framfylgjum
henni á skipulegan hátt og endurskoðun reglulega. Við tryggjum enn fremur að öllum lagalegum og öðrum kröfum á sviði umhverfismála sé fullnægt.

