Daði Már tók þá ákvörðun á dögunum eftir enn eina bensínhækkunina að metanbreyta Hyundai Getz sem hann á, aðspurður hvað það var sem fékk hann til að vilja metanbreyta bíl sínum sagði hann að of hátt og ört hækkandi bensínverð hafi ollið því að hann tók þessa ákvörðun. Daði Már kom til okkar fyrir nokkrum dögum eftir að hann breytti bílnum og var mjög ánægður með að eyða helmingi minna í elsneytiskostnað en hann gerði fyrir breytinguna. Við óskum Daða Már til hamingju með að vera farinn að nota innlendan og grænann orkugjafa.
Metanorka , systur fyrirtæki Vélamiðstöðvarinnar, hefur unnið markvist af því undanfarið ár að hönnun metanorkuvers sem til stendur að reisa í Melasveit.
Á meðan fjölmiðlar hér heima fjalla um gasleysi sem og að breytingaraðilar pæli ekki í því að metangas sé ekki endanlaus auðlind, eru sérfræðingar Metanorku og Vélamiðstöðvarinnar að vinna markvist að þessum málaflokki.
Þessa stundin eru starfsmenn Metanorku að leggja lokahönd á hönnun orkuvers sem og að kortleggja allan lífrænan úrgang á Íslandi, með tilsjón að metangas framleiðslu.
Meðfylgjandi er mynd, tekin 14. Maí síðastliðinn, þar sem ný tegund metangasframleiðslu var skoðuð í Danmörku.
Er von á starfsmönnum Metanorku aftur til landsins 16. Maí með fulla vasa af nýjustu tækni.
Því má segja að Vélamiðstöðin og Metanorka eru lengst komin hvað varðar tækni í breytingum á bílum sem og framleiðslu á metangasi.
Við vinnum fyrir ykkur.
Haraldur Leví hjá Record Records sem gefur m.a. út plötuna My Head Is An Animal með Of Monsters And Men tók þá ákvörðun á dögunum að breyta hinum eina sanna gullvagni í metangullvagn. Leyndarmálið er þá leyst varðandi gullvagninnn og vitum við þá að gullvagninn er metan Cherokee. Haraldur kom í heimsókn til okkar og var mjög ánægður með breytinguna á gullvagninum og nú er bara spurning hvað Bjöggi gerir?
Við hjá metanbill.is óskum Haraldi Leví til hamingju með að vera kominn í hóp sannra Íslendinga sem aka um á íslensku og umhverfisvænu eldsneyti.
Á undanförnum dögum og vikum hefur heimsmarkaðsverð á olíu og bensíni verið að lækka og er nú svo komið að hjá okkur hér á Íslandi að bensín einungis helmingi dýrara en metan. Þetta eru góðar fréttir og það er óskandi að þetta haldi áfram, það er gott fyrir alla og það er vissulega áfram mun hagstæðara að aka um á metani þar sem það er helmingi ódýrara.
Hægt er að skoða þróun eldsneytisverðs með því að smella hér.
Bílabúð Benna og Metanbill.is hafa verið í áralöngu samstarfi með metanbreytingar á nýjum Chevrolet bílum. Finna má greinilega aukningu í sölu á Chevrolet Cruze metan þar sem allnokkrir svoleiðis hafa rúllað út af verkstæðinu okkar undanfarna daga og vikur. Chevrolet Cruze eru fallegir bílar sem fást bæði fjögurra og fimm dyra. Þeir sem aka um á Chevrolet Cruze metan borga um helmingi minna í eldsneyti, umtalsvert lægri bifreiðagjöld og leggja síðan frítt í gjaldskyld stæði Reykjavíkurborgar.
Síðan skemmir það ekki hvað þeir eru umhverfisvænir...
Skoðaðu verðskránna á nýjum 4 dyra Chevrolet Cruze hjá Bílabúð Benna


Þessi bíll var að klárast og fleiri að koma...
BL tekur þátt í metanvæðingunni að fullum krafti og býður í dag upp á Hyundai ix35 metanbreyttan í samstarfi við okkur hjá metanbill.is .
Samstarfið hefur fengið frábærar viðtökur. Litlir jeppar seljast vel þessa dagana enda er BL að bjóða metanbreyttan IX35 á mjög góðu verði eins og sjá má á verðskránni hjá þeim hér
Við óskum BL til hamingju með að taka þátt í metanvæðingunni og bjóða íslenska metanbíla.
Metan er nútíminn !

