
Vottanir Vélamiðstöðvarinnar
Vélamiðstöðin var fyrst breytingar fyrirtækja til þess að hljóta vottun sem breytingar aðili af Umferðarstofu.
Vélamiðstöðin er vottuð af EUROGAS sem umboðsaðili og þjónustuaðili á Íslandi.
Jafnframt er Vélamiðstöðin í innleiðingarferli fyrir bæði ISO 9001 Gæðastjórnunarstaðli og ISO 14001 Umhverfisstjórnunar staðli.
Vottanir á Starfsmönnum Vélamiðstöðvarinnar
Allir starfsmenn Vélamiðstöðvarinnar sem vinna við breytingarnar eru vottaðir af EUROGAS.
Við breytingarnar starfa
Bifvélavirkjar
Vélvirkjar
Bílaréttingarmenn
Vottanir á búnaði
EUROGAS:
Búnaðurinn sem við notum við metanbreytingarnar er ECE R110 vottaður og merktur með E8 merkingu. Þessi vottun er á öllum þeim búnaði sem kemur að gashlutanum og stjórnkerfi hans.
OMB:
Tanklokar og áfyllingarstútar koma frá OMB og bera sömu vottun og EUROGAS búnaðurinn, ECE R110.
Metantankarnir:
Metantankarnir hafa tvær vottanir. Annarsvegar ECE R110 vottun og/eða ISO 11439.
Flash Lube:
Ventlasmurkerfið hefur TUV NORD vottun

