Nýir bílar
Allir bílar sem breyttir eru í nýskráningarferli eiga rétt á endurgreiðslu allra Vörugjalda, að hámarki 1.250.000kr.
Þessi endurgreiðsla er einungis í boði fyrir bíla sem fluttir eru til landsins sem nýir og eru með að lágmarki 78L tankrými fyrir metangasið.
Notaðir bílar
Notaðir bílar eiga rétt á endurgreiðslu vörugjalda. Endurgreiðslan nemur 20% af heildar kostnaði breytingarinnar að hámarki 100.000kr.
Þessi endurgreiðsla er einungis í boði fyrir bíla sem eru yngri en 6 ára við breytingu, miðað við framleiðlsuár, og eru með að lágmarki 78L tankrými fyrir metangasið. Þessi endurgreiðsla er í boði þangað til vörugjald hefur verið endurgreitt vegna breytinga á 1.000 bílum.
Bifreiðagjöld
Allir breyttir metanbílar fara í lágmarksflokk bifreiðagjalda eftir að bifreiðin hefur verið breytt, hún skoðuð, vottuð og skráð.
Greiðir þú því einungis 5.255kr í bifreiðgjöld á 6 mánaðar fresti ásamt 350kr í Úrvinnslugjald.
Kynntu þér hvað þú ert að greiða í dag með því að smella hér.
Öll aðstoð við pappírsvinnu vegna endurgreiðslu vörugjalda er innifalin þegar þú breytir bílnum hjá okkur.

