EUROGAS

 

Yfirburðir Eurogas metankerfisins

 

Eurogas www.eurogas.nl metankerfið er hannaður og þróaður af stærsta framleiðanda metankerfa og íhluta fyrir metankerfi í heiminum, Landi Renzo www.landi.it. Vélamiðstöðin lagði mikla vinnu í að velja það kerfi sem hentaði best við íslenskar aðstæður. Nánast öll kerfi sem í boði eru á markaðinum í dag voru skoðuð og prófuð hjá Vélamiðstöðinni. Reyndist Eurogas búa yfir miklum yfirburðum sem á endanum réðu úrslitum. Hentaði það sérstaklega íslenksum aðstæðum.Ólíkt öðrum framleiðendum metankerfa byrjaði Landi Renzo að þróa metankerfi og færði sig síðan yfir í própan. Aðrir framleiðendur fóru hina leiðina. Því hefur þekkingin verið frá upphafi hjá Landi Renzo. Enn í dag er horft á Landi Renzo sem móðir allra metakerfa enda lang mesta þróunin orðið hjá þeim.

 

Eurogas er með forskot

Eurogas leggur mikið upp úr því að ísetning sé skilvirk og virknin góð. Stjórntölvan er ein sú fullkomnasta sem í boði er og aðlagar sig að hverjum bíl við hverjar aðstæður fyrir sig.

Eurogas kerfið passar upp á vélina þína

Eurogas kefið bíður upp á að verja vélina þína gegn sliti á ventlum, ólíkt öðrum kerfum. Hvort sem það er að láta vélina ganga á bensíni við erfiðar aðstæður eða láta örfáa bensíndropa falla þá er það eitthvað sem Eurogas kerfið leikur sér að.

Eurogas kerfið kemur þér fyrr yfir á gasið en önnur kerfi

Eurogas fer yfir á gasið við 40°C hitastig. Eurogas metankerfið er því eldsnöggt að setja þig yfir á metangasið. Byrjar því mun fyrr að spara en á öðrum kerfum.

 

Reynsla síðan 1954

Eurogas var stofnað 1978 í samstarfi við Landi Renzo sem var stofnað 1954. Þekkingin er því gríðarleg og hefur Eurogas og Landi Renzo leitt þá þróun sem sést best í þeim gæðum sem kerfin bjóða upp á.

 

EUROGAS

 

Bíla- og mótorhjólaframleiðendur velja Eurogas

 

BMW ASHOK LEYLAND Brilliance CHERI CHevrolet CHRYSLER Citroen Daihatsu FIAT Nissan Mahindra Maruti OPEL Piaggio Renault SEAT SKODA SUZUKI TATA TOYOTA VWMINIIRAN Khodro

 

 
 

Sími 5800 400 | Gufunes | 112 Reykjavík | metanbill[hjá]metanbill.is

Netvistun - Heimasíðugerð, hugbúnaðarlausnir og hönnun